Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 08. júní 2019 20:59
Ívan Guðjón Baldursson
HM kvenna: Noregur ekki í vandræðum
Mynd: Getty Images
Noregur 3 - 0 Nígería
1-0 Guro Reiten ('17)
2-0 Lisa-Marie Utland ('34)
3-0 Osinachi Ohale ('37, sjálfsmark)

Noregur lenti ekki í vandræðum gegn Nígeríu í fyrstu umferð riðlakeppni HM kvenna.

Gæði Norðmanna skinu í gegn í fyrri hálfleik. Guro Reiten skoraði eftir vel útfærða stutta hornspyrnu og tvöfaldaði Lisa-Marie Utland forystuna á 34. mínútu.

Skömmu síðar varð Osinachi Ohale fyrir því óláni að gera sjálfsmark í tilraun sinni til að fara fyrir fyrirgjöf.

Seinni hálfleikurinn var jafn og tíðindalítill og lokatölur 3-0.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner