Justin Edinburgh, 49 ára þjálfari Leyton Orient, lést í dag eftir að hafa verið í fimm daga á spítala.
Edinburgh, sem átti magnað tímabil með Leyton og kom liðinu aftur upp í D-deildina, fékk hjartaáfall á mánudaginn og var farið með hann beint upp á spítala.
Edinburgh átti farsælan feril sem atvinnumaður í knattspyrnu og lék fyrir Tottenham í tíu ár. Hann vann FA bikarinn og deildabikarinn með Tottenham og lék einnig fyrir Portsmouth í kringum aldamótin.
Edinburgh spilaði sem vinstri bakvörður og eftir að hann lagði skóna á hilluna fór hann í þjálfun. Hann stýrði Newport County í fjögur ár, tók við Gillingham í tvö ár, stutt stopp hjá Northampton og tók svo við Leyton Orient í nóvember 2017.
Deeply saddened to hear that Justin Edinburgh has passed away. He was an excellent coach and a terrific fullback who was a delight to share a dressing room with and have as a teammate. Thoughts are with his family. #RipJustin
— Gary Lineker (@GaryLineker) June 8, 2019
Athugasemdir