lau 08. júní 2019 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar frá í mánuð - Willian kallaður upp í staðinn
Mynd: Getty Images
Paris Saint-Germain er búið að staðfesta að meiðsli Neymar eru ekki alvarleg. Framherjinn knái verður frá í einn mánuð og missir því af Suður-Ameríkubikarnum.

Brasilía hefur ekki unnið keppnina síðan 2007 og er hún haldin í heimalandinu í ár. Neymar er sagður vera afar svekktur útaf þessu en hann er einnig að glíma við nauðgunarákæru.

Neymar verður því ekki í brasilíska hópnum á mótinu þar sem hann verður ekki klár í slaginn fyrr en í blálok mótsins.

Willian, þrítugur leikmaður Chelsea, var kallaður upp til að fylla í skarð Neymar.

Heimamenn eru í riðli með Bólivíu, Venesúela og Perú. Fyrsta umferð er gegn Bólivíu og hefst leikurinn skömmu eftir miðnætti næsta föstudagskvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner