Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. júní 2019 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Úkraína: Árni og félagar fallnir
Fengu þrjár vítaspyrnur dæmdar gegn sér
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolos Kovalyovka 2 - 0 Ch. Odessa
1-0 V. Gavrysh ('57)
2-0 V. Gavrysh ('63)

Árni Vilhjálmsson og félagar í Chornomorets Odessa voru nálægt því að enda í botnsæti efstu deildar í Úkraínu en unnu síðustu þrjá leiki sína í röð og tryggðu sér þannig umspilssæti.

Liðið mætti Kolos Kovalyovka, sem endaði í 2. sæti B-deildarinnar, og fór fyrri viðureignin 0-0 á heimavelli. Seinni leikurinn var svo í dag.

Árni var í byrjunarliði Ch. Odessa og var mikið jafnræði var með liðunum í leiknum. Heimamenn fengu vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Volodymir Lysenko brenndi af.

Eftir leikhlé fengu heimamenn tvær vítaspyrnur til viðbótar og í þetta sinn var knettinum skilað í netið. Vitali Gavrysh gerði bæði mörkin.

Árna var skipt útaf á 71. mínútu en það bar engan árangur og lokatölur 2-0. Árni og félagar fallnir úr efstu deild í Úkraínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner