Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 08. júní 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Paratici til liðs við Tottenham í vikunni
Mynd: Getty Images
Hinn ítalski Fabio Paratici mun í vikunni ganga formlega til liðs við Tottenham. Það er Goal sem segir frá.

Enska úrvalsdeildarfélagið er að ráða Paratici sem nýjan yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu. Hann mun sjá um leikmannakaup og leikmannamál hjá félaginu.

Paratici hefur undanfarin 11 ár starfað hjá ítalska risanum Juventus þar sem hann byggði upp sterkt lið.

Paratici er núna að taka við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Spurs þar sem hann mun sjá um byggingu leikmannahópsins.

Tottenham er að reyna að ráða nýjan knattspyrnustjóra en það gengur illa. Antonio Conte vildi ekki taka við liðinu þar sem hann vildi vinna titla strax.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner