Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. júlí 2018 08:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Pickford: Við getum búið til okkar eigin sögu
Pickford var mjög öflugur í gær.
Pickford var mjög öflugur í gær.
Mynd: Getty Images
Jordan Pickford var magnaður í rammanum hjá Englandi í gær er liðið sigraði Svíþjóð með tveimur mörkum gegn engu.

Pickford þurfti að taka á honum stóra sínum nokkrum sinnum í leiknum og átti nokkrar frábærar vörslur og tókst að halda hreinu í leiknum. Markmaðurinn var valinn maður leiksins en var hógvær í viðtali eftir leik.

Hápunkturinn var að halda hreinu. Þetta snýst um að halda áfram að ná árangri og verða betri. Því fleiri leiki sem þú spilar, því betri verður þú,” sagði Pickford.

Það er hér sem ég vil vera. Ég vil bara spila í stærstu leikjunum gegn stærstu liðunum. Við erum ungt lið en höfum mikla reynslu. Við vitum hvernig við eigum að vinna saman fyrir hvorn annan og hverjir styrkleikar okkar eru. Við vitum hvernig á að sigra.”
Athugasemdir
banner
banner