Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 08. júlí 2018 21:30
Gunnar Logi Gylfason
Suarez: Griezmann er ekki frá Úrúgvæ
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann fagnaði ekki er hann skoraði annað mark Frakka í 2-0 sigrinum gegn Úrúgvæ í 8-liða úrslitunum á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.

Griezmann hefur gefið það út að hann vildi ekki fagna á móti Úrúgvæ þar sem það var úrúgvæskur þjálfari sem hjálpaði honum að taka sín fyrstu skref í atvinnumennskunni.

Auk þess er Diego Godín, fyrirliði úrúgvæska landsliðsins og liðsfélagi Griezmann hjá Atletico Madrid, guðfaðir dóttur hans.

Luis Suarez, framherji úrúgvæska landsliðsins, gefur ekki mikið fyrir það og hefur sagt að hann sé enginn Úrúgvæi.

„Hann er ekki Úrúgvæi, hann er Frakki og hann skoraði mark," sagði Suarez við fjölmiðlamenn.

„Hann veit ekki hvað við þurfum að gera til að ná árangri í fótbolta. Hann hefur sína siði og hann talar eins og hann vill um Úrúgvæ, en við erum ekki eins."
Athugasemdir
banner
banner