Aron Jóhannsson mun skrifa undir samning hjá Hammarby í Svíþjóð á miðvikudaginn en sænska blaðið Expressen greinir frá þessu.
Aron er án félags en samningur hans hjá Werder Bremen var að renna út um mánaðarmótin.
Hjá Hammarby á Aron að fylla skarð Viðars Arnar Kjartanssonar sem er í láni frá Rostov.
Lánssamningur Viðars rennur út 15. júlí og Hammarby hefur ekki fjárhagslega burði til að halda honum. Viðar hefur skorað sex mörk í fjórtán leikjum í sænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Aron er 28 ára gamall en hann hefur átt við erfið meiðsli að stríða undanfarin ár. Af þeim sökum spilaði hann einungis einn leik í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili.
Athugasemdir