Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 08. júlí 2019 19:15
Brynjar Ingi Erluson
Davies og Winks framlengja við Tottenham
Harry Winks og Ben Davies kátir á æfingasvæðinu
Harry Winks og Ben Davies kátir á æfingasvæðinu
Mynd: Tottenham Hotspur
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur hefur framlengt við þá Harry Winks og Ben Davies en samningur þeirra gildir til ársins 2024.

Winks er 23 ára gamall miðjumaður og uppalinn í Spurs en hann spilaði fyrsta leik sinn fyrir aðalliðið árið 2014 og hefur spilað 104 leiki fyrir félagið.

Hann hefur verið að spila stóra rullu hjá liðinu og spilaði 41 leik á síðasta tímabili.

Ben Davies er velskur bakvörður sem kom frá Swansea árið 2014 og hefur hann leikið 168 leiki fyrir félagið.

Þeir hafa báðir gert nýjan fimm ára samning við félagið og gildir hann til 2024.



Athugasemdir
banner
banner
banner