Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 08. júlí 2019 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Everton vill fara til Milan
Everton Soares í leik með brasilíska landsliðinu
Everton Soares í leik með brasilíska landsliðinu
Mynd: Getty Images
Brasilíski landsliðsmaðurinn Everton Soares vill ólmur ganga í raðir ítalska félagsins AC Milan. Þetta kemur fram í brasilíska miðlinum A Bola.

Everton er 23 ára gamall og spilar fyrir Gremio í heimalandinu en hann gerði frábæra hluti með brasilíska landsliðinu er það vann Copa America á dögunum.

Hann er afar eftirsóttur um alla Evrópu og hafa stærstu félögin fylgst með honum en hann virðist aðeins vilja ræða við eitt félag.

Samkvæmt A Bola vill Everton fara til AC Milan, þrátt fyrir að liðið spili ekki í Evrópukeppni á þessari leiktíð.

Gremio mun ekki samþykkja tilboð undir 40 milljónum evra en hann er einnig með 60 milljón evra klásúlu í samningnum sínum.

Everton var markahæsti leikmaðurinn í Copa America með 3 mörk ásamt Paolo Guerrero, framherja Perú.
Athugasemdir
banner
banner
banner