Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 08. júlí 2019 12:30
Magnús Már Einarsson
Ívar Orri og Þorvaldur dæma í Evrópudeildinni
Þorvaldur Árnason.
Þorvaldur Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar Orri Kristjánsson og Þorvaldur Árnason dæma báðir leiki í Evrópudeildinni í þessari viku.

Ívar Orri verður dómari á viðureign serbneska liðsins FK Cukaricki og FC Banants frá Armeníu í Evrópudeild UEFA, en liðin mætast í Serbíu á fimmtudag.

Aðstoðardómarar verða þeir Birkir Sigurðarson og Oddur Helgi Guðmundsson og varadómari verður Helgi Mikael Jónsson. Eftirlitsmaður leiksins verður síðan Lettinn Andrejs Sipailo.

Þorvaldur verður dómari í viðureign FK Partizani frá Albaníu og Qarabag frá Aserbaídsjan, sem mætast í forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn fer fram í Tirana í Albaníu á miðvikudag.

Aðstoðardómarar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon, og varadómari Pétur Guðmundsson. Eftirlitsmaður UEFA á leiknum verður Konrad Plautz frá Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner