Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   mán 08. júlí 2019 23:07
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir
Lillý: Þetta var ekki okkar leikur í fyrri hálfleik
Lillý, miðvörður Vals.
Lillý, miðvörður Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrri hálfleikurinn var alls ekki nógu góður, við vorum undir í baráttunni og alltof langt frá mönnunum okkar. Ég gerði hræðileg mistök í markinu og þetta var ekki okkar leikur í fyrri hálfleik en svo sýndum við okkar rétta andlit og kláruðum leikinn mjög vel, “ sagði Lillý eftir leik kvöldsins en hún varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í stöðunni 0-0, það fyrsta á ferlinum að eigin sögn. Það kom þó ekki að sök þar sem Valur kláraði leikinn örugglega, 5-1.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  5 Valur

Aðspurð sagði Lillý að það hefði ekkert stress komið í hópinn þrátt fyrir að lenda 1-0 undir.

„Við ræddum þetta vel í hálfleik og vorum alveg vissar um að við myndum klára þetta. Við erum með það flotta karaktera í þessu liði að við vissum að við værum alltaf að fara að klára þetta.

Það gekk ekki mikið upp í sókninni í fyrri hálfleik hjá Valsstúlkum en mikið var um háa bolta og fyrirgjafir sem illa gekk að vinna úr.

„Við vorum ekki nógu margar komnar inn í teig í hlaupin þegar sendingarnar komu, það var kannski bara 1 á móti 5 þannig við töluðum um að fylla aðeins betur á teiginn og það gekk svo sannarlega upp.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.



Athugasemdir
banner
banner