Brasilíumaðurinn Neymar mætti ekki til æfinga hjá Paris Saint-Germain í dag, eins og hann átti að gera.
Parísarliðið sendi frá sér yfirlýsingu vegna þess.
„Paris Saint-Germain finnst þetta ástand leitt og mun gera viðeigandi ráðstafanir vegna þess," segir meðal annars í yfirlýsingunni frá franska stórliðinu.
Neymar yfirgaf Barcelona og gekk í raðir PSG fyrir metfé fyrir tveimur árum en stöðugt berast fréttir um að hann sé ekki fullkomlega sáttur í höfðuborg Frakklands.
Hann hefur verið orðaður við sitt fyrrum félag, Barcelona, í sumar.
Statement from #PSG : "Paris Saint-Germain notes that Neymar Jr was not in attendance at the agreed time and place. This was without the club’s prior authorisation.
— footballespana (@footballespana_) July 8, 2019
The club regrets this situation and will therefore take appropriate action." pic.twitter.com/fr04RgViJQ
Athugasemdir