Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. ágúst 2019 09:53
Magnús Már Einarsson
BBC: Dybala ekki til Tottenham
Mynd: Getty Images
BBC greindi frá því rétt í þessu að ekkert verði af kaupum Tottenham á Paulo Dybala framherja Juventus.

Félögin hafa verið í viðræðum undanfarin sólarhring en Juventus hefur nú ákveðið að selja Argentínumanninn ekki.

Dybala var um síðustu helgi orðaður við Manchester United í skiptum fyrir Romelu Lukaku en ekkert varð af þeim félagaskiptum út af háum launakröfum leikmannsins.

Tottenham mun hins vegar styrkja hópinn í dag en félagið er að landa Giovani lo Celso miðjumanni Real Betis og Ryan Sessegnon kantmanni Fulham.
Enska upphitunin - Gluggafjör og uppeldi hjá Tottenham
Athugasemdir
banner
banner
banner