Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. ágúst 2019 11:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Everton reynir að fá Rojo frá Man Utd
Mynd: Getty Images
Everton er í viðræðum við Manchester United um kaup á argentíska varnarmanninum Marcos Rojo.

Rojo getur spilað sem bæði miðvörður og vinstri bakvörður.

Hann er 29 ára gamall og hefur leikið með Manchester United frá 2014, þegar hann kom frá Sporting í Portúgal.

Rojo hefur aðeins spilað 18 leiki í öllum keppnum fyrir Manchester United á síðustu tveimur tímabilum. Hann má fara, þá sérstaklega eftir komu Harry Maguire.

Everton reyndi að fá Chris Smalling í gær, en United vill ekki láta hann fara.

Smelltu hér til að sjá öll helstu tíðindin á gluggadeginum

Taktu þátt í umræðunni á Twitter með því að nota #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner