Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. ágúst 2019 14:58
Magnús Már Einarsson
Landsliðshópurinn fyrir undankeppni EM: 16 ára nýliði
Sandra María og Cloe ekki valdar
Icelandair
Cecilía Rán Rúnarsdóttir er í hópnum.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari kvenna.
Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari kvenna, tilkynnti nú rétt í þessu hópinn sem mætir Ungverjalandi og Slóvakíu í fyrstu leikjunum í undankeppni EM. Leikirnir fara fram á Laugardalsvelli 29. ágúst og 2. september.

Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn gegn Ungverjalandi
Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn gegn Slóvakíu

Markvörðurinn reyndi Guðbjörg Gunnarsdóttir er ekki í hópnum en hún greindi frá því á dögunum að hún sé ólétt.

Hin 16 ára gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir er nýliði í hópnum en hún hefur vakið athygli í markinu hjá Fylki á þessu tímabili. Cecilía kom til Fylkis frá Aftureldingu síðastliðinn vetur.

Sandra María Jessen, framherji Bayer Leverkusen, er ekki í hópnum né Cloe Lacasse, leikmaður ÍBV, en hún fékk íslenskan ríkisborgararétt á dögunum.

Karolína Lea Vilhjálmsdóttir og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmenn Breiðabliks, eru í hópnum en þær eiga einn og tvo landsleiki að baki.

Markverðir
Sandra Sigurðardóttir | Valur
Sonný Lára Þráinsdóttir | Breiðablik
Cecilía Rán Rúnarsdóttir | Fylkir

Varnarmenn:
Ásta Eir Árnadóttir | Breiðablik
Ingibjörg Sigurðardóttir | Djurgarden
Sif Atladóttir | Kristianstads DFF
Guðný Árnadóttir | Valur
Anna Björk Kristjánsdóttir | PSV
Glódís Perla Viggósdóttir | Rosengard
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir | Breiðablik
Hallbera Guðný Gísladóttir | Valur

Miðjumenn:
Dagný Brynjarsdóttir | Portland Thorn
Margrét Lára Viðarsdóttir | Valur
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir | Breiðablik
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | Utah Royals
Sara Björk Gunnarsdóttir | Wolfsburg
Alexandra Jóhannsdóttir | Breiðablik

Framherjar:
Hlín Eiríksdóttir | Valur
Agla María Albertsdóttir | Breiðablik
Berglind Björg Þorvaldsdóttir | Breiðablik
Elín Metta Jensen | Valur
Svava Rós Guðmundsdóttir | Kristianstads DFF
Fanndís Friðriksdóttir | Valur

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner