Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. ágúst 2019 15:20
Magnús Már Einarsson
Lasse Petry mögulega frá út tímabilið
Lasse í leik með Val í sumar.
Lasse í leik með Val í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lasse Petry, miðjumaður Vals, verður mögulega ekki meira með liðinu á þessu tímabili.

Lasse meiddist á hné í tapi Val gegn Ludogorets í Evrópudeildinni í síðustu viku og meiðslin líta ekki vel út.

Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, segir að Lasse verði mögulega ekki meira með á þessu tímabili.

„Við erum ekki alveg með það á hreinu hvað þetta tekur langan tíma en hann fékk slæma byltu út í Búlgaríu," sagði Sigurbjörn við Fótbolta.net í dag.

Lasse er búinn að fara í myndatöku en hann á eftir að fá lokaniðurstöður úr henni og þá kemur í ljós hvort hann eigi möguleika á að ná fleiri leikjum í sumar.

Lasse kom til Vals síðastliðinn vetur og hefur skorað þrjú mörk í tólf leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar.
Athugasemdir
banner
banner