Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. ágúst 2019 07:59
Magnús Már Einarsson
Lukaku mættur í læknisskoðun
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku, framherji Manchester United, mætti til Ítalíu í gær þar sem hann fer í læknisskoðun hjá Inter.

Inter hefur náð samkomulagi um að kaupa hann á 73 milljónir punda.

Lukaku mun skrifa undir fimm ára samning við Inter eftir tveggja ára dvöl hjá United.

Framtíð Lukaku hefur verið í óvissu í allt sumar en hann hefur ekki tekið þátt í undirbúningsleikjum United og í vikunni hefur hann æft með sínu gamla félagi Anderlecht í Belgíu,

Manchester United hefur áhuga á að fá Mario Mandzukic frá Juventus til að fylla skarð Lukaku.
Athugasemdir
banner
banner
banner