Manchester United hefur hafið viðræður við Juventus um kaup á króatíska framherjanum Mario Mandzukic en Sky á Ítalíu greinir frá þessu.
Romelu Lukaku er á leið í læknisskoðun hjá Inter og United vill kaupa framherja í hans stað.
Romelu Lukaku er á leið í læknisskoðun hjá Inter og United vill kaupa framherja í hans stað.
Hinn 33 ára gamli Mandzukic hefur lengi verið á óskalista Manchester United en hann skoraði tíu mörk í 33 leikjum á síðasta tímabili.
Inaki Williams, framherji Athletic Bilbao, hefur einnig verið orðaður við United.
Hinn 25 ára gamli Williams skoraði tólf mörk í La Liga en stórlið hafa áður sýnt honum áhuga.
Athugasemdir