Sadio Mane gæti komið við sögu í leik Liverpool og Norwich í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar annað kvöld þrátt fyrir að hafa lítið sem ekkert æft á undirbúningstímabilinu.
Mane fékk sumarfrí eftir Afríkukeppnina í sumar en einungis nokkrir dagar eru síðan hann mætti aftur til æfinga hjá Liverpool.
Hann æfði sjálfur til að byrja með áður en hann hóf æfingar með liðsfélögum sínum í gær.

„Hann virðist vera í formi. Í gær var fyrsta æfing hans með liðinu. Hann virðist vera í lagi. Já, hann kemur til greina," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag aðspurður út í það hvort Mane verði með á morgun.
„Við eigum marga möguleika og margar mismunandi liðsuppstillingar. Enginn leikmaður hefur gefið mér ástæðu til að halda honum fyrir utan liðið svo það verður erfitt að velja í hópinn."
Athugasemdir