Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. ágúst 2019 18:30
Magnús Már Einarsson
Pepe gæti neyðst til að bíða eftir fyrsta leik hjá Arsenal
Pepe var næstmarkahæstur í Frakklandi á síðasta tímabili.
Pepe var næstmarkahæstur í Frakklandi á síðasta tímabili.
Mynd: Getty Images
Bið gæti orðið á því að kantmaðurinn Nicolas Pepe spili sinn fyrsta leik með Arsenal.

Hinn 24 ára gamli Pepe kom frá Lille á 72 milljónir punda í sumar og stuðningsmenn Arsenal bíða spenntir eftir að sjá hann í eldlínunni.

Pepe var með Fílabeinsströndinni í Afríkukeppninni í sumar áður en hann fór í sumarfrí. Hann hóf því ekki æfingar með Arsenal fyrr en í síðustu viku.

Möguleiki er á að Arsenal láti Pepe bíða með að spila fyrsta leikinn og hann verði ekki með í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar gegn Newcastle um helgina.

Pepe er mikið í styrktaræfingum þessa dagana en þjálfarateymi Arsenal vill styrkja hann fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni.
Enska upphitunin - Spennandi sumargluggi hjá Arsenal
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner