Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. ágúst 2019 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sara Björk lék í öruggum sigri gegn Arsenal
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg í æfingaleik gegn Arsenal í gær.

Þýska úrvalsdeildin byrjar 17. ágúst næstkomandi og hefur Wolfsburg titil að verja fjórða tímabilið í röð.

Sara lék í gær 57 mínútur og var staðan 2-0 fyrir Wolfsburg þegar hún fór af velli. Leikurinn endaði með góðum 3-0 sigri þýska stórliðsins.

Arsenal er ríkjandi meistari í Englandi. Enska úrvalsdeildin hefst snemma í september og verður opnunarleikur deildarinnar Manchester-slagur á Etihad-vellinum.

Athugasemdir
banner
banner
banner