Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. ágúst 2019 07:52
Magnús Már Einarsson
Scott Carson á leið til Manchester City
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn reyndi Scott Carson er á leið í læknisskoðun hjá ensku meisturunum í Manchester City.

Carson kemur á láni frá Derby County út tímabilið.

Manchester City vildi fá þriðja markvörð til að vera Ederson og Claudio Bravo til halds og trausts eftir að Arijanet Muric fór til Nottingham Forest á láni.

Hinn 33 ára gamli Carson varð fyrir valinu en hann á langan feril að baki í enska boltanum.

Carson hefur meðal annars spilað með Liverpool, Charlton, Aston Villa, WBA, Wigan og Derby á ferli sínum.
Athugasemdir
banner
banner