Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. ágúst 2019 10:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu fyrsta mark Hazard fyrir Real Madrid
Mynd: Getty Images
Eden Hazard opnaði markareikninginn með Real Madrid í gær þegar Real lagði Salzburg að velli í æfingaleik í gær.

Real Madrid keypti Hazard frá Chelsea í byrjun sumars, en undirbúningstímabilið hefur verið erfitt hjá Real Madrid, liðið fékk skell gegn Atletico Madrid og helsta umræðuefnið hefur verið óvissan í kringum Gareth Bale.

Ekki hefur það hjálpað að Hazard mætti á undirbúningstímabilið í slöku formi. Hann mætti of þungur.

Gagnrýnisraddir hafa vaknað, en hann svaraði þeim með glæsilegu marki í gær.

Markið má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner