Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. ágúst 2019 15:07
Magnús Már Einarsson
Tottenham hafnar tilboði frá Watford í Danny Rose
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur hafnað 14 milljón punda tilboði frá Watford í vinstri bakvörðinn Danny Rose. Sky Sports greinir frá. Framtíð Rose hefur verið í óvissu í sumar en hann hefur verið orðaður við brottför frá Tottenham.

Watford hefur ekki gefist upp og gæti reynt að bjóða betur áður en félagaskiptaglugginn lokar eftir klukkutíma.

Rose er 29 ára gamall enskur landsliðsmaður en hann hefur leikið með Tottenham síðan árið 2007.

Rose var meðal annars til umræðu í ensku upphituninni í gær en þar ræddu Hjálmar Örn Jóhannsson, Ingimar Helgi Finnsson og Jóhann Alfreð Kristinsson stuðningsmenn Tottenham um liðið.

Hlustaðu á þáttinn hér að neðan eða í hlaðvarpsveitum.
Enska upphitunin - Gluggafjör og uppeldi hjá Tottenham
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner