Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   lau 08. september 2018 18:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
St. Gallen.
Ari Freyr: Eins og við værum að reyna að gefa þeim færi
Icelandair
Ari Freyr lék allan leikinn í vinstri bakverði.
Ari Freyr lék allan leikinn í vinstri bakverði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Flóðgáttir opnast, ég veit ekki hversu mörg mörk þeir hefðu getað skorað," sagði Ari Freyr Skúlason þegar hann ræddi við blaðamenn eftir hræðilegt 6-0 tap Íslands gegn Sviss í Þjóðadeildinni í St. Gallen í Sviss í kvöld.

Lestu um leikinn: Sviss 6 -  0 Ísland

„Þetta er stærsta tap sem ég hef upplifað í langan tíma. Að byrja með nýjum þjálfara og að byrja þetta svona er skelfilegt."

„Þeir áttu eina sendingu og þá vorum við allir opnaðir, svo keyrðu þeir á okkur - þeir eru með tekníska og fljóta menn, við vissum það alveg. Við ræddum um Xhaka í hálfleik, hann var í fyrri hálfleik að stjórna öllu. Í seinni hálfleik, ég veit ekki hvernig ég get lýst þessu."

Eftir þriðja markið fór allt loft úr liðinu. Í staðinn fyrir að gera eitthvað þá gafst liðið bara algjörlega upp.

„Það var ekki bara þriðja markið, við sköpuðum ekki neitt, við vorum ekki líkir okkur sjálfum. Það er erfitt að sjá hvað fór úrskeiðis, þetta var alltof auðvelt."

Næsti leikur er gegn Belgíu, sem er ef eitthvað er sterkari andstæðingur.

„Við þurfum að fara aftur í grundvallaratriðin, byggja á þéttleikanum á okkar. Í dag var eins og við værum að gefa þeim færi. Það eru þrír dagar í næsta leik, við verðum klárir á morgun."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner