Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. september 2018 14:36
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Íslands - Guðlaugur Victor byrjar
Icelandair
Guðlaugur Victor Pálsson er í byrjunarliðinu.
Guðlaugur Victor Pálsson er í byrjunarliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 16:00 hefur Ísland leik í Þjóðadeildinni þegar leikið verður gegn Sviss í St. Gallen.

Erik Hamren hefur opinberað sitt fyrsta byrjunarlið.

Byrjunarlið Íslands:


Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Það kemur ekkert á óvart í byrjunarliðinu, það er nákvæmlega eins og búist var við miðað við æfingar í vikunni.

Guðlaugur Victor Pálsson fær tækifæri í byrjunarliðinu í fjarveru Arons Einars Gunnarssonar. Ari Freyr Skúlason byrjar í vinstri bakverði en Hörður Björgvin Magnússon hefur verið tæpur og ekki getað tekið fullan þátt í æfingum.

Jón Daði Böðvarsson og Björn Bergmann Sigurðarson eru saman í fremstu víglínu. Gylfi Þór Sigurðsson er með fyrirliðabandið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner