„Þetta var mjög erfitt og alls ekki nógu gott," sagði Guðlaugur Victor Pálsson við Fótbolta.net eftir 6-0 tap Íslands gegn Sviss í fyrsta leik í Þjóðadeildinni í dag.
Lestu um leikinn: Sviss 6 - 0 Ísland
„Við bjuggumst ekki við þessu sjálfir. Við vorum vel undirbúnir og klárir í þetta. Við gerðum ekki það sem við ætluðum að gera."
„Við vorum of opnir og leyfðum þeim að finna svæði bakvið okkur og á milli okkar. Við vorum ekki nægilega þéttir og þá gerist þetta."
Næsti leikur íslenska liðsins er strax á þriðjudag á Laugardalsvelli gegn Belgum.
„Við dveljum við þetta í kvöld og síðan förum við á morgun að einbeita okkur að leiknum á þriðjudaginn,"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir