Hannes Þór Halldórsson markvörður Íslands var að vonum svekktur eftir leikinn gegn Sviss í Þjóðardeildinni í kvöld. Íslenska liðið sá aldrei til sólar í leiknum og niðurstaðan 6-0 fyrir Sviss.
Lestu um leikinn: Sviss 6 - 0 Ísland
„Það eru engir ljósir punktar í þessu, hvorki úrslit né frammistaða á vellinum. Það er ekki hægt að tína neitt til og því miður var þetta bara ömurlegur leikur hjá okkur," sagði Hannes.
„Við vorum ekki góðir í fyrri hálfleik en við vorum hræðilegir í seinni hálfleik og það er ekkert hægt að fela sig á bakvið það. Þetta var langur, erfiður og niðurlægjandi seinni hálfleikur og maður gat ekki beðið eftir að hann væri búinn."
„Nú verðum við bara að einangra þetta við þennan leik. Við vitum alveg að við erum góðir og við þurfum bara að grafa eftir sjálfstraustinu, þjappa okkur saman og rífa okkur í gang."
Viðtalið við Hannes má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir