Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 08. september 2018 18:44
Arnar Helgi Magnússon
Rúrik: Maður verður að passa sig að láta ekki of stór orð falla
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúrik Gíslason var í byrjunarliði Íslands sem mætti Sviss í Þjóðardeildinni í kvöld. Rúrik var skipt út af á 74. mínútu leiksins en inn á í hans stað kom Rúnar Már Sigurjónsson. Leiknum lauk með 6-0 sigri Sviss. Algjörlega hræðileg úrslit.

Lestu um leikinn: Sviss 6 -  0 Ísland

„Tilfinningin er ekki góð. Þetta var mjög erfitt í dag, það verður að segjast alveg eins og er. Við vorum bara skítlélegir í dag. Við þurfum að gíra okkur vel upp í næsta leik," sagði Rúrik eftir leik.

„Það voru auðvitað nýir hlutir sem við vorum að prófa, ekki það að það sé einhver afsökun en við vorum stirðir og eftir á. Maður verður bara að passa sig að láta ekki of stór orð falla."

„Við þurfum að fara yfir þetta og líta í eigin barm, sjá hvað maður hefði sjálfur geta gert betur."

Að sögn Rúriks er þetta versti landsleikur sem hann hefur tekið þátt í á ferlinum.

„Úrslitalega séð þá er það ljóst. Stærsta tap sem ég hef tekið þátt í, maður verður að hafa breitt bak til að þola þetta. Nú verðum við að sýna að við erum karakterar og getum rifið okkur upp fyrir næsta leik."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner