Viðar Örn Kjartansson, framherji, Rostov spilaði 30 mínútur þegar íslenska landsliðið var tekið í kennslustund í St. Gallen í kvöld. Íslenska liðið lenti undir snemma í leiknum og eftir það var ekki snúið.
Lestu um leikinn: Sviss 6 - 0 Ísland
„Þetta var alveg skelfilegt. Það er hægt að lenda undir og hitt liðið er að spila betur en maður á ekki að missa hausinn og tapa 6-0. Það er alveg klárt."
„Það er ömurlegt að tapa 6-0 og við erum allir ósáttir. Ég kem inná þegar það er 3-0 og þá segir Freysi mér að fara til þess að halda boltanum."
„Við vorum ekkert með boltann. Eftir það vorum við aðeins með boltann en þegar við töpuðum honum þá fengum við skyndisókn í andlitið og þeir skora, þetta er hrikalegt."
„Við verðum tilbúnir fyrir þriðjudaginn en að sjálfsögðu voru allir mjög daprir inní klefa eftir leik. Við þurfum að reyna að finna út hvað fór úrskeiðis og núlstilla okkur fyrir Belga leikinn."
Viðtalið við Viðar má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir