Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 08. september 2019 18:10
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Þrjú rauð er Vængir Júpiters og KF skildu jöfn
Alexander Már Þorláksson skoraði tvö og er kominn með 24 mörk í 3. deildinni
Alexander Már Þorláksson skoraði tvö og er kominn með 24 mörk í 3. deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Vængir Júpiters 2 - 2 KF
0-1 Alexander Már Þorláksson ('15 )
1-1 Brynjar Gauti Þorsteinsson ('40 )
1-2 Alexander Már Þorláksson ('66 )
2-2 Aron Páll Símonarson ('90 )
Rautt spjald: Geir Kristinsson ('70, Vængir Júpiters), Jordan Damachoua ('70, KF ), Halldór Ingvar Guðmundsson ('88, KF )

KF hikstaði í toppbaráttunni í 3. deildinni í dag er liðið gerði 2-2 jafntefli við Vængi Júpiters í 20. umferð deildarinnar.

Alexander Már Þorláksson kom KF yfir á 15. mínútu áður en Brynjar Gauti Þorsteinsson jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks. Alexander skoraði 24. mark sitt í deildinni á 66. mínútu og kom KF yfir en fjórum mínútum síðar fóru tvö rauð spjöld á loft.

Geir Kristinsson og Jordan Damachoua voru reknir af velli og því aðeins tíu í hvoru liði. Halldór Ingvar Guðmundsson, markvörður KF, var svo rekinn af velli á 88. mínútu og jafnaði Aron Páll Símonarson metin fyrir Vængina. Lokatölur 2-2.

KF er í öðru sæti með 45 stig þegar tvær umferðir eru eftir en Kórdrengir eru á toppnum með 51 stig. KV á tölfræðilega möguleika en liðið er fjórum stigum á eftir KF í þriðja sætinu. Vængirnir eru með 38 stig í 4. sæti.
Athugasemdir
banner
banner