Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 08. september 2019 12:30
Brynjar Ingi Erluson
Griezmann um vítaklúðrið: Skrifast alfarið á konuna!
Antoine Griezmann og Raphael Varane
Antoine Griezmann og Raphael Varane
Mynd: EPA
Franski landsliðsmaðurinn Antoine Griezmann var nokkuð brattur eftir 4-1 sigur Frakklands á Albaníu í undankeppni Evrópumótsins í gær, þrátt fyrir að hann hafi klúðrað vítaspyrnu í leiknum.

Griezmann var nokkuð líflegur í leiknum en hann hefur verið lykilmaður í franska landsliðinu undanfarin ár.

Griezmann fór á punktinn í stöðunni 2-0 en brenndi af. Hann bætti þó upp fyrir það með því að leggja upp mark fyrir Kingsley Coman en hann grínaðist með ástæðuna á bakvið klúðrið.

„Ég veit ekki hvað gerðist. Ég bara hef ekki hugmynd en samt eins og ég sagði áðan þá er það sennilega af því eiginkona mín horfði ekki á leikinn!" sagði Griezmann og hló.

Hægt er að sjá spyrnuna hér fyrir neðan en hann þrumaði í slá áður en boltinn skoppaði af línunni og út.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner