Fotbolti.net
08.10.22 - 21:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ítalía: Milan hafði betur í stórleiknum

Fikayo Tomori

Fikayo Tomori

Canon

Mynd: EPA

AC Milan og Juventus mættust í stórleik helgarinnar í ítalska boltanum í dag.

Juventus hefur verið langt frá sínu besta á þessari leiktíð og var í 8. sæti deildarinnar eftir átta leiki fyrir leikinn í dag. AC Milan var í 5. sæti með 17 stig.

Það stefndi í markalaust jafntefli í hálfleik en enski miðvörðurinn Fikayo Tomori kom AC Milan yfir í uppbótartíma.

Brahim Diaz bætti öðru marki við snemma í síðari hálfleik og tryggði AC Milan stigin þrjú. Með sigrinum fór liðið upp í 3. sæti en Juventus er áfram í 8. sæti.

Bologna og Sampdoria gerðu jafntefli í botnbaráttuslag en Sampdoria er á botninum með 3 stig og Bologna tveimur stigum frá fallsæti með sjö stig.

Bologna 1 - 1 Sampdoria
1-0 Nicolas Dominguez ('32 )
1-1 Filip Djuricic ('72 )

Milan 2 - 0 Juventus
1-0 Fikayo Tomori ('45 )
2-0 Brahim Diaz ('54 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter6+1016
2Roma5+1113
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Juventus5+410
7Frosinone6+310
8Como5+310
9Napoli6+310
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Monza5-44
16Parma6-64
17Genoa6-64
18Fiorentina6-74
19Bologna5-32
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.