Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   lau 08. október 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Man City sektað eftir titilsigurinn á síðustu leiktíð

Manchester City lagði Aston Villa að velli með mögnuðum 3-2 endurkomusigri til að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn á lokadegi síðasta úrvalsdeildartímabils. 


Stuðningsmenn Man City fögnuðu sigrinum dátt og ruddust inn á völlinn til að fagna með leikmönnum að leikslokum.

Man City hefur því verið sektað um 260 þúsund pund, sem samsvarar um 40 milljónum króna, fyrir að mistakast að hafa hemil á stuðningsmönnum sínum eftir sigurinn.

Ekki nóg með að ryðjast á völlinn heldur voru áhorfendur með ógnandi tilburði gagnvart leikmönnum Aston Villa og var einn þeirra sem veittist að Robin Olsen, markverði Villa.

Enska knattspyrnusambandið hefur verið duglegt við að beita þungum refsingum á fótboltafélög sem mistókst að hafa stjórn á stuðningsmönnum sínum á mikilvægum stundum á síðustu leiktíð. 260 þúsund pund er dropi í hafið fyrir Man City en félagið hefur fengið aðvörun um talsvert þyngri refsingu ef svona atvik kemur upp aftur.

Everton var sektað um 300 þúsund pund í síðasta mánuði og er enska knattspyrnusambandið í herferð gegn áhorfendum sem haga sér illa. Nokkrir tugir áhorfenda voru bannaðir frá fótbolta á síðustu leiktíð fyrir hin ýmsu atvik, sumir tímabundið en aðrir fengu lífstíðarbönn.

Þá voru einhverjir áhorfendur sem fengu skilorðsbundna fangelsisdóma fyrir sín brot.


Slapp
banner
banner