Fotbolti.net
08.11.19 - 13:40
Magnús Már Einarsson

Ederson ekki með gegn Liverpool

Ederson ekki með gegn Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, staðfesti á fréttamannafundi nú rétt í þessu að markvörðurinn Ederson verði ekki með í toppslagnum gegn Liverpool á sunnudag.

Ederson fór meiddur af velli í hálfleik gegn Atalanta í vikunni en Claudio Bravo kom inn á í hans stað. Bravo verður í markinu á Anfield á sunnudag.
„Hann verður ekki með," sagði Guardiola um Ederson á fréttamannafundi í dag.

„Við erum með annan topp markvörð og Claudio Bravo getur líka staðið sig vel. Hann er stórkostlegur markvörður. Hann er landsliðsmaður. Ég hef engar efasemdir um hann."

Guardiola segir ekki ennþá ljóst hversu lengi Ederson verður frá vegna meiðslana en eftir leikinn gegn Liverpool tekur við landsleikjahlé.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal12+1029
2Man City12+823
3Brighton12+1622
4Liverpool12+822
5Bournemouth12+521
6Brentford12+1320
7Leeds12+820
8Tottenham12+318
9Hull City12+317
10Everton12-217
11Chelsea12-116
12Newcastle12-216
13Aston Villa12-315
14Nott. Forest12-512
15Ipswich Town12-712
16Coventry12-1112
17Fulham12-311
18Sunderland12-119
19Man Utd12-138
20Crystal Palace12-167
Claudio Bravo er landsliðsmarkvörður Síle.

Claudio Bravo er landsliðsmarkvörður Síle.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.