Fotbolti.net
08.11.19 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Harry Kewell með Loga og Eiði í beinni á sunnudaginn

Harry Kewell í leik með Liverpool á sínum tíma.

Harry Kewell í leik með Liverpool á sínum tíma.

Canon

Mynd: Getty Images

Harry Kewell, fyrrum leikmaður Liverpool og Leeds, verður í beinni útsendingu hjá Símanum Sport fyrir toppslag Liverpool og Manchester City á sunnudaginn. Upphitun hefst klukkan 16:00 en leikurinn sjálfur hefst 16:30.

Eiður Smári Guðjohnsen og Logi Bergmann Eiðsson verða á vellinum á Anfield og í upphitun fyrir leikinn spjalla þeir við Kewell.

Hinn ástralski Kewell spilaði með Liverpool frá 2003 til 2008 og vann meðal annars Meistaradeildina með liðinu árið 2005.
Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Síminn Sport, spáir í leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og þar ræddi hann dagskrána á sunnudaginn.

„Eiður Smári og Logi Bergmann verða á grasinu á Anfield og fá góðan gest, sjálfan Harry Kewell með sér í upphitun fyrir leik. Í upphitun fyrir leikinn fáum við svo Raphael Honingstein, blaðamann par exelance, í heimsókn en hann var að gefa út nýja ævisögu Jürgens Klopps. Öllu til tjaldað fyrir þennan stærsta leik tímabilsins," sagði Tómas Þór.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.