Fotbolti.net
08.11.19 - 14:10
Magnús Már Einarsson

O'Neill nýr stjóri Stoke (Staðfest) - Áfram með Norður-Írland

O'Neill nýr stjóri Stoke (Staðfest) - Áfram með Norður-Írland
Canon

Mynd: Getty Images

Michael O'Neill hefur verið ráðinn stjóri Stoke City í ensku Championship deildinni en hann tekur stöðu Nathan Jones sem var rekinn í síðustu viku.

O'Neill hefur verið landsliðsþjálfari Norður-Írlands frá 2011 ár en hann fór með liðið á EM 2016.

O'Neill klárar undankeppni EM með Norður-Írum í næstu og þarnæstu viku og stýrir liðinu einnig í mögulegum umspilsleikjum um sæti á EM í mars.
Hinn fimmtugi O'Neill hitti leikmenn Stoke á æfingu í dag og mun ferðast með liðinu í leikinn gegn Barnsley á morgun.

O'Neill bíður alvöru verkefni en Stoke er á botninum í Championship deildinni, sex stigum frá öruggu sæti.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.