Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 08. nóvember 2020 19:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grikkland: Íslendingaliðin unnu - Ögmundur bíður eftir fyrsta leiknum
Sverrir Ingi Ingason.
Sverrir Ingi Ingason.
Mynd: Getty Images
Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason lék allan leiktímann þegar PAOK vann góðan útisigur gegn Smyrnis í grísku úrvalsdeildinni.

PAOK leiddi 1-0 í hálfleik en Smyrnis jafnaði metin eftir um klukkutíma leik.

PAOK fékk tvær vítaspyrnur á síðustu 20 mínútum leiksins og nýttu þær báðar. Lokatölur því 3-1 fyrir Sverri Inga og félögum sem eru í þriðja sæti með 15 stig eftir sjö leiki.

Ögmundur Kristinsson var á varamannabekknum hjá Olympiakos sem vann 2-0 útisigur á OFI Crete. Ögmundur bíður enn eftir fyrsta leiknum með Olympiakos, sem er á toppi deildarinnar með 16 stig, en hann gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið.

Bæði Sverrir og Ögmundur eru í íslenska landsliðshópnum sem kemur saman í vikunni fyrir leiki gegn Ungverjalandi, Danmörku og Englandi.
Athugasemdir
banner
banner