Fotbolti.net
08.11.22 - 23:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þýskaland: Gnabry skoraði þrennu í stórsigri - Mane meiddur

Serge Gnabry

Serge Gnabry

Canon

Mynd: Getty Images

Það var mikill tilfinningarússíbani þegar Bayern tók á móti Werder Bremen í þýsku deildinni í kvöld.

Jamal musiala kom Bayern yfir snemma leiks en Werder Bremen jafnaði metin stuttu síðar.

Eftir tuttugu mínútna leik varð Bayern, senegalska landsliðið og Sadio Mane fyrir miklu áfalli þegar hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla. Julian Nagelsmann sagði eftir leikinn að hann hafi fengið högg á fótlegginn en ekki er vitað hversu alvarleg meiðslin eru.

Vonandi fyrir hann og senegalska landsliðið að hann verði klár í slaginn fyrir HM.

Leroy Sane kom inn á fyrir hann. Serge Gnabry kom Bayern aftur yfir áður en Leon Goretzka skoraði þriðja markið. Sane lagði síðan upp fjórða markið fyrir Gnabry og þannig var staðan í hálfleik.

Gnabry skoraði síðan fimmta mark Bayern og þriðja mark sitt áður en ungstirnið Mathys Tel skoraði síðasta mark leiksins.

Fyrr í kvöld vann Wolfsburg 2-0 sigur á Dortmund sem er nú sex stigum frá toppliði Bayern.

Bayern 6 - 1 Werder
1-0 Jamal Musiala ('6 )
1-1 Anthony Jung ('10 )
1-1 Eric Choupo-Moting ('18 , Misnotað víti)
2-1 Serge Gnabry ('22 )
3-1 Leon Goretzka ('26 )
4-1 Serge Gnabry ('28 )
5-1 Serge Gnabry ('82 )
6-1 Mathys Tel ('84 )

Wolfsburg 2 - 0 Borussia D.
1-0 Micky van de Ven ('6 )
2-0 Lukas Nmecha ('90 )

Bochum 2 - 1 Borussia M.
1-0 Christopher Antwi-Adjej ('7 )
2-0 Philipp Hofmann ('11 )
2-1 Alassane Plea ('62 )

Stuttgart 2 - 1 Hertha
1-0 Sehrou Guirassy ('3 )
1-1 Dodi Lukebakio ('19 )
2-1 Konstantinos Mavropanos ('90 )

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.