Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 08. desember 2018 16:37
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Chelsea og Man City: Enginn framherji á vellinum
Mynd: Getty Images
Chelsea tekur á móti Englandsmeisturum Manchester City í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Báðir stjórar tóku svipaða ákvörðun fyrir leikinn þar sem enginn hreinræktaður sóknarmaður byrjar á vellinum.

Eden Hazard, Pedro og Willian leiða sóknarlínu Chelsea á meðan Leroy Sane, Raheem Sterling og Riyad Mahrez eru fremstu menn Man City.

Sergio Agüero er ekki í hóp vegna meiðsla en Gabriel Jesus er á bekknum. Olivier Giroud er á bekk heimamanna.

Man City þarf sigur eða jafntefli til að endurheimta toppsæti úrvalsdeildarinnar af Liverpool á meðan Chelsea þarf sigur í Meistaradeildarbaráttunni.

Chelsea: Kepa, Alonso, Rudiger, Luiz, Azpilicueta, Jorginho, Kante, Kovacic, Pedro, Willian, Hazard.
Varamenn: Caballero, Christensen, Emerson, Fabregas, Loftus-Cheek, Barkley, Giroud.

Manchester City: Ederson, Walker, Stones, Laporte, Delph, Fernandinho, Silva, Mahrez, Sane, Bernardo, Sterling.
Varamenn: Muric, Danilo, Kompany, Gundogan, Otamendi, Jesus, Foden.
Athugasemdir
banner
banner