Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 08. desember 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Breiðablik og KR mætast í úrslitum
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Breiðablik og KR mætast í úrslitaleik Bose-mótsins eftir að HK lagði Stjörnuna að velli eftir vítaspyrnukeppni í bronsleiknum.

Liðin mætast í Fífunni fyrir hádegi eftir að hafa sigrað sitthvorn riðilinn í riðlakeppninni.

KR lék á alls oddi og skoraði fjögur mörk gegn Stjörnunni og átta gegn Víkingi R. Blikar lögðu FH og HK að velli í sínum riðli og spennandi úrslitaleikur framundan.

Seinna í dag fara tveir leikir fram í Boganum á Akureyri. Magni mætir þar varaliði KA í Kjarnafæðismótinu, áður en Dalvík/Reynir spilar við varalið Þórs.

Bose-mótið:
11:00 Breiðablik - KR (Fífan)

Kjarnafæðismót - A-deild:
15:15 Magni - KA 2 (Boginn)

Kjarnafæðismót - B-deild:
17:15 Dalvík/Reynir - Þór 2 (Boginn)
Athugasemdir
banner
banner
banner