Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 08. desember 2018 14:42
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Raggi var rekinn útaf í Rússlandi
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Ragnar Sigurðsson var í byrjunarliði FK Rostov sem tapaði 1-0 fyrir FK Krylya Sovetov í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.

Ragnar var rekinn af velli á 82. mínútu leiksins eftir furðulegt atvik sem er hægt að sjá með að smella hér.

Raggi var að taka innkast þegar leikmaður andstæðinganna hljóp æstur að honum og brást Raggi illa við.

Ekki er ljóst hvers vegna leikmenn Krylya voru svona reiðir út í Ragga en dómarinn gaf Ramil Sheydaev í liði Krylya gult spjald fyrir sinn þátt í átökunum.

Athugasemdir
banner
banner
banner