Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. desember 2018 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pochettino skilur stuðningsmenn sem mættu ekki á Wembley
Mynd: Getty Images
Það mættu aðeins 33 þúsund manns á heimaleik Tottenham gegn Southampton í vikunni og segist Mauricio Pochettino skilja þá stuðningsmenn sem héldu sig heima eftir 4-2 tap gegn Arsenal nokkrum dögum fyrr.

Tottenham vann leikinn gegn Southampton 3-1 en gestirnir fengu mikið af færum og var Hugo Lloris maður leiksins.

Sigurinn kom Tottenham aftur upp í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar þar sem liðið er sex stigum frá Liverpool og átta frá toppliði Manchester City.

„Maður skilur gremju stuðningsmanna eftir tap gegn Arsenal og ég átta mig á því að það er erfitt að fara á Wembley á virku kvöldi," sagði Pochettino eftir sigurinn gegn Southampton.
Athugasemdir
banner
banner
banner