Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 08. desember 2018 15:10
Ívan Guðjón Baldursson
Salah gaf Milner verðlaunin
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah var maður leiksins er Liverpool rúllaði yfir Bournemouth í fyrsta leik dagsins í enska boltanum.

Salah lék allan leikinn og skoraði þrennu og fór í viðtal með fyrirliðanum James Milner, sem var að spila sinn fimmhundruðasta úrvalsdeildarleik, að leikslokum.

Milner fékk verðlaun til að afhenda Salah fyrir að vera maður leiksins en egypski kongurinn neitaði verðlaununum og sagði að Milner ætti þau skilið.

„Ég verð að óska honum til hamingju með magnaðan feril, hann á skilið að fá þessi verðlaun í dag. Ég vonast til að eiga fleiri svona leiki á mínum ferli, en ég ætla ekki að taka við verðlaununum."




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner