Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 08. desember 2018 13:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Salah var rangstæður en markið stendur
Mynd: Getty Images
Nýbúið er að flauta til hálfleiks í viðureign Bournemouth og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og leiða gestirnir með einu marki gegn engu.

Mohamed Salah skoraði eina mark hálfleiksins á 25. mínútu þegar hann fylgdi skoti frá Roberto Firmino eftir.

Skotið frá Firmino virtist ekkert sérlega hættulegt en Asmir Begovic náði ekki að halda boltanum og varði hann út í teiginn.

Salah var þá fyrstur til boltans og skoraði örugglega, en endursýningar sýndu egypska snillinginn vera í rangstöðu þegar skot Firmino lagði af stað.

Hægt er að sjá markið með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner