Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 08. desember 2018 14:36
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu sjálfsmarkið: Cook kláraði með hælnum
Mynd: Getty Images
Liverpool var rétt í þessu að leggja Bournemouth að velli með fjórum mörkum gegn engu.

Mohamed Salah skoraði þrennu í leiknum og gerði Steve Cook, varnarmaður Bournemouth, eitt.

Markið hans Cook var þó ekki af verri endanum þar sem hann kláraði fyrirgjöf Andy Robertson frá vinstri með glæsibrag og eflaust betur en nokkur sóknarmaður hefði getað gert.

Fyrirgjöfin var í óþægilegri hæð fyrir Cook sem sneri frá markinu og reyndi að hreinsa. Honum tókst þó að setja hælinn í boltann og stýra honum þannig framhjá Begovic sem var þó ekki langt frá því að verja.

Sjón er sögu ríkari og er hægt að sjá myndband af atvikinu með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner