Alfreð Finnbogason er nýkominn úr meiðslum og lék hann fyrstu 60 mínúturnar er Augsburg tapaði fyrir Bayer Leverkusen.
Augsburg er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti, með 13 stig eftir 14 umferðir.
Borussia Dortmund lagði Schalke að velli í erkifjendaslagnum þar sem hinn efnilegi Jadon Sancho gerði sigurmarkið.
Dortmund er með níu stiga forystu á toppi deildarinnar. Bayern er í öðru sæti eftir góðan sigur gegn Nürnberg, þar sem Robert Lewandowski skoraði tvö.
Freiburg skellti RB Leipzig sem er í fjórða sæti og Wolfsburg gerði 2-2 jafntefli við Hoffenheim.
Bayern 3 - 0 Nurnberg
1-0 Robert Lewandowski ('9 )
2-0 Robert Lewandowski ('27 )
3-0 Franck Ribery ('56 )
Schalke 1 - 2 Borussia Dortmund
0-1 Thomas Delaney ('7 )
1-1 Daniel Caligiuri ('61 , víti)
1-2 Jadon Sancho ('74 )
Bayer Leverkusen 1 - 0 Augsburg
1-0 Lucas Alario ('75 )
Freiburg 3 - 0 RB Leipzig
1-0 Nils Petersen ('12 )
2-0 Luca Waldschmidt ('45 , víti)
3-0 Mike Frantz ('52 )
Wolfsburg 2 - 2 Hoffenheim
0-1 Ishak Belfodil ('4 )
0-2 Ermin Bicakcic ('28 , sjálfsmark)
1-2 Daniel Ginczek ('31 )
1-3 Andrej Kramaric ('71 )
Athugasemdir