Fotbolti.net
08.12.19 - 21:14
Magnús Már Einarsson

Leicester sló félagsmet

Leicester sló félagsmet
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester sló félagsmet með því að vinna Aston Villa 4-1 í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Leicester hefur nú unnið átta leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni en það gerðist ekki einu sinni þegar liðið varð meistari árið 2016.
Þrátt fyrir frábært gengi að undanförnu þá er Leicester átta stigum á eftir toppliði Liverpool.

Leicester er með 38 stig eftir 16 umferðir en sá stigafjöldi hefði dugað til að vera á toppnum í 15 af 27 síðustu tímabilum í ensku úrvalsdeildinni.

Ekki er ólíklegt að Leicester haldi áfram á skriði um næstu helgi þegar botnlið Norwich kemur í heimsókn. Næstu tveir leikir eftir það eru síðan gegn Manchester City og Liverpool.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.