Fotbolti.net
08.12.19 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Puel segir að Vardy sé stundum eins og barn

Vardy hefur skorað 14 mörk í 15 deildarleikjum á tímabilinu.

Vardy hefur skorað 14 mörk í 15 deildarleikjum á tímabilinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Claude Puel, fyrrum stjóri Leicester, segir að sóknarmaðurinn Jamie Vardy sé „eins og barn."
Puel stýrði Leicester frá október 2017 til febrúar 2019. Brendan Rodgers tók við eftir að Puel var rekinn og er Leicester núna í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Vardy hefur farið á kostum hjá Rodgers og er búinn að skora 14 mörk í 15 leikjum á þessu tímabili í deildinni. Puel náði ekki því besta úr Vardy og var sóknarmaðurinn um tíma á bekknum undir stjórn Frakkans.

„Það voru ekki nein vandamál á milli okkar, að minnsta kosti ekki frá minni hlið," sagði Puel við Daily Mail um samband sitt við hinn 32 ára gamla Vardy.

„Jamie er góður maður, en stundum er hann eins og barn; hann þarf stuðning, hann þarf athygli. Það var erfitt fyrir mig því ég er ekki enskur, það var erfitt fyrir mig að deila og útskýra allar mínar tilfinningar fyrir honum."

„Þegar ég kom til Leicester, þá skoraði hann mörg mörk. Hann kom til baka af Heimsmeistaramótinu meiddur. Það var erfitt fyrir mig að nota hann alltaf."

Puel stýrir nú St. Etienne í Frakklandi. Hann segir að gott gengi Leicester á þessu tímabili komi sér ekki á óvart.

„Það kemur mér ekki á óvart að sjá Leicester í þessari stöðu. Þetta er sama lið og ég var með, fyrir utan Ayoze Perez. Það er gaman að sjá þetta."

„Brendan hefur gert frábæra hluti. Ef þú lítur á þetta lið og svo liðið sem vann titilinn árið 2016, þá er leikstíllinn allt öðruvísi. Það var mín vinna í byrjun, að búa til lið með möguleikann á að ná þessum árangri."

Leicester mætir Aston Villa síðar í dag og getur með sigri þar minnkað forskot Liverpool á toppi deildarinnar í átta stig.
Claude Puel.

Claude Puel.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Ipswich Town1+13
7Leeds1+13
8Man City1+13
9Liverpool101
10Newcastle101
11Chelsea000
12Fulham000
13Bournemouth1-10
14Sunderland1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.